Það er erfitt að vera gáfaður í heimi heimskra :P

..*..The Truth is Out There..*..

31.01.2009 11:11:45 / hilmar04

Of course you found it in the last place you looked. If you hadn't found it you'd still be looking

Jæja orðið  nokkuð langt síðan síðast... fyrsta blogg árið 2009 er ritað þann 31. janúar, daginn áður en besti mánuðurinn byrjar :d Það hefur svo sem ekki svo mikið á daga mína drifið síðustu daga, nema að ég fer í skólann, hesthús, læra, eða ef ég er dugleg: ræktin, skóli, hesthús, læra, sund og læra ;) og reyndar á mánudögum förum við stelpurnar á Varmaland þar sem við höfum íþróttasalinn leigðan og förum í einhverjar íþróttir, svo sem blak eða körfubolta eins og við gerðum síðast sem mun greinilega alltaf enda svoleiðis að Guðrún meiði sig :$ og ég sver að ég meiddi hana ekki:!: svona í fyrsta skipti á ævinni komst ég í gegnum leika án þess að meiða neinn mótherja:!: ok ekki alveg í fyrsta skiptið en ég get nú oft verið nokkuð gróf :$

Síðan er ég í fjórum fögum núna, lífrænni efnafræði, frumulíffræði, grasafræði og vistfræði... hlakkaði svo til að taka frumulíffræðina en neihhhhh auðvitað er leiðinlegasta bók veraldar notuð til kennslu sem hefur það eina takmark að svæfa mann og hún er þar að auki fokking 1200 bls:!: Talandi um svefn þá vaknaði ég upp með andfælum í nótt þegar ég var nýsofnuð. Einhver bjáni hefur verið að elda sér eitthvað kl 4 í nótt og tókst að láta brunavarnakerfi hússins í gang :evil: hefur örugglega verið á fylleríi og ákveðið að fá sér að éta enda er það alltaf nokkuð gáfulegt :) þá verður maður nebblega ekki þunnur ;) en já vaknaði sem sagt við þetta og fyrsta hugsun var hvaða hálfvitar þetta væru, önnur hugsun hvað ég vonaði að það væri ekki kviknað í því mér langaði að sofa og þriðja hugsun hvað ég mundi nú taka með mér ef það væri kviknað í og hvað mér langaði ekki út því það væri svo kalt... já ég hafði nú reyndar engar svakalegar áhyggjur þetta er búið að gerast nokkrum sinnum eftir að ég flutti... þannig að ef það kviknar einhvern tímann í í alvörunni þá mun ég líklegast brenna inni þar sem ég mun ekki taka mark á þessu... en jæja ég er svo sem á jarðhæð þannig að maður ætti að geta komið sér út...:p

En jæja get ekki haft þetta lengra þar sem ég er að fara í hesthúsin til að viðra elskurnar mínar þá Hilmar og Kóng (hey Hilmar er þyngsti og stærsti hesturinn í húsinu :p alveg heil 429 kg og 145 cm við herðarkamb :) ) og síðan fer ég í bæinn með eigendunum mínum Guðrúnu og Davíð og samgæludýrum mínum þeim Vöku og Kol ;) og ætla að gista hjá Lilju systu :)

Lag dagsins:
Back in Black með AC/DC

p.s. parteyyy á fimmtudaginn 5.feb allir velkomnir ;) síðan afmæliskaffi á sunnudeginum :)




» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 00:40:41 / hilmar04

Verandi í núinu 25.nóv '08

Nenni ekki að blogga en langaði samt að gera eitthvað svo að...

Núverandi föt: Nike stuttbuxur og böðlabolurinn minn

Núverandi skap: Þreytt og pirruð

Núverandi hár: Nær aðeins niður á bak og er brúnt

Núverandi pirringur: Hvað sumar manneskjur eru ógeðslega mikil fífl og fólk sem getur ekki skilið að ég ræð ekki verðlaginu í hyrnunni

Núverandi tilhlökkun: Jólafrí og komast á bak á Hilmar

Núverandi lykt: Sturtulykt og þá líklegast lyktin af brilliant brunette sjampóinu mínu

Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Sofandi eða lærandi

Núverandi skartgripir: Enginn en annars úrið mitt á daily basis

Núverandi áhyggja: Prófin

Núverandi ósk: Eiginlega ekkert

Núverandi farði: Bara púra natural

Núverandi eftirsjá: Ehmm veit ekki

Núverandi vonbrigði: Hið mannlega eðli

Núverandi skemmtun: Ehmmm tölvan greinilega

Núverandi ást: Hestarnir mínir og Vaskur og Lappi

Núverandi staður: Herbergið mitt á Skólaflötinni

Núverandi bók: Nýjasta bókin í Eragon seríunni sem sagt Brisingr (já ég sagði Brisingr þetta er ekki stafsetningarvilla)

Núverandi bíómynd: 10 inch hero

Núverandi íþrótt: Hestaíþróttir...

Núverandi tónlist: Allt með Rammstein, Metallica, Rage Against the Machine, Korn, Limp Bizkit, Led Zeppelin, Linkin Park...

Núverandi lag á heilanum: Einhver jólalög sem eru búin að vera í spilun í allan dag í ofur úberjólaskreyttu hyrnunni... Halló það er ennþá nóvember fólk!!!!!

Núverandi blótsyrði: Helvítis

Núverandi msn manneskjur: Guðrún

Núverandi desktop mynd: Mynd af Aski frá Akranesi

Núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Sofa

Núverandi manneskja sem ég er að forðast: Ætla bara ekki að fara að nafngreina hérna einhverjar ákveðnar manneskjur

Núverandi dót á veggnum? Myndir af dýrunum mínum...

 



» 1 hafa sagt sína skoðun

22.10.2008 00:25:52 / hilmar04

You tried your best and you failed miserably. The lesson is 'never try

Jæja jæja... langt síðan eitthvað heyrðist í mér hér á bæ, enda hef ég nú eiginlega frekar takmarkaðan tíma til að blogga, sá litli frítími sem ég hef fer yfirleitt í hestana mína, djamma eða eitthvað allt annað en að blogga... Já maður er nefnilega á kafi í lærdómi 24/7 fyrir utan tímann sem fer í hesthúsin :) Þegar ég lít til baka á þann tíma sem ég var í fnv (já ég veit geðveikislega langt síðan þar sem ég er orðin hundgömul...:lol:) og var virkilega kvartandi yfir miklum heimalærdómi hugsa ég til þess hvað ég átti gott þá... amsk í lærdómsmálum ;) það er nefnilega ekki möguleiki að bera lærdóminn hérna saman við fnv þar sem það er mun meira að gera hérna...og þegar ég segi mun meira þá er ég alveg virkilega að meina MUN meira:!: og "aðeins" hærri standard á öllum verkefnum... já það voru góðir tímar þegar maður þurfti ekki að vaka til 3-4 að læra og vakna síðan kl 7 til þess að læra meira... hérna er það bara normið, amsk þegar líður að prófum :s reyndar er þessi vika nokkuð róleg þar sem við erum að byrja í nýjum fögum og engin eiginleg kennsla byrjuð... er þá búin með 3 áfanga, stærðfræði, inngang að búvísindum og maður og náttúra, og er núna í tölfræði, efnafræði og rekstur og arðsemi... allt áfangar sem munu held ég reynast mér nokkuð auðveldir þó að maður sé búinn að heyra að það er 50% fall í efnafræðinni... held að ég kunni bara nokkuð mikið í henni þannig að ég held að ég sé safe...

En jæja annað en skólinn er svo sem lítið að frétta af mér, er bara að vinna í hyrnunni (amsk á mánudagskvöldum) fyrir smá vasapening þar sem það er nú kreppa núna :s, fer á djammið (nota bene á fimmtudögum þar sem allir fara út að skemmta sér hérna á fimmtudagskvöldum... kollubar er klárlega málið :p) og síðan fer ég alltaf á hestbak og er búin að ákveða að gefa Kleópötru minni séns fram að áramótum og ef hún skánar ekkert fyrir þann tíma ætla ég að henda henni í vallholt og hefja kjötframleiðslu... :evil: hún er nefnilega lítið pirrandi kvikindi sem mig langar helst að snúa úr hálsliðnum í augnablikinu... hún afrekaði það td að ná að hlaupa með mig á hurð í reiðhöllinni þar sem hún var önnum kafin við að hrekkja mig svo að ég flaug yfir reiðhallarvegginn beint á steinsteypu og það var ekki laust við að það væri bara pínu vont...eða amsk óþægilegt... hún datt nottlega síðan sjálf á steypunni, braut ruslatunnu, felldi hjólbörur og fékk smávægilegt gat á hausinn...:whut: já það var sko rosa sýning hjá okkur... reyndar sá hana enginn :| Þristur litli foli er öllu betri, hann verður sko gangahesturinn minn í náinni framtíð enda þurfum við nú að fara að yngja upp í þeim málum ;) get samt ekki gert að því að hlakka til eftir áramót því þá fæ ég litlu kallana mína þá Hilmsa og Kóngsa til mín sem verður bara æði gæði... :D

Ohh er samt farið að langa að fara heim... fer samt örugglega ekkert heim fyrr en helgina 14-16 nóv því þá erum við að fara með vallholtsfolöldin á sláturhús... verð nú að renna heim þá, er líka farin að sakna hundanna minna geðveikislega mikið :( sem betur fer kemst ég samt í hunda hérna svo að ég er ekki alveg hundlaus, gæti ekki fúnkerað án þess að komast í hunda og hesta... já hún Vaka er svo mikil dúlla, og Gríma litla líka... og Kolur sæti :p litlu krúttí púttí... :D
Afrekaði það samt að veiða Guðrúnu með mér heim í nóv til að sýna henni sveitina þar sem ég fór í road trip í hennar sveit síðustu helgi ;)

En jæja er að íhuga að fara að sofa eða eitthvað, skóli í fyrramálið þó að hann byrji ekki fyrr en 9 ;) vúhú má sofa til hálf 9 á morgun :p

Lag dagsins: Stay Close, Don't Go með Secondhand Serenade
P.s. eða E.s. eftir því hvernig á málið er litið... titilsetning bloggsins í dag er frá mesta spekingi okkar tíma honum Homer Simpson ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2008 23:18:24 / hilmar04

Ísland er stórasta land í heimi :D

Ákvað að vitna í okkar virðulegu forsetafrú sem kom með þessa snilldarsetningu eftir stórkostlega snilldarleikinn við Spanjólana... Sem var, ef ég er ekki búin að koma því til skila, TÆR SNILLD:!::!::!: Drengirnir okkar eru sko bestir :lol: algjörlega gjörsamlega bestastir :d Síðan er bara að taka frakkadruslurnar í næsta leik, sem verður verulega erfitt en alveg mögulegt ;) aldrei að segja aldrei... :)

En jæja á morgun flyt ég bara á Hvanneyri, er búin að vera að pakka öllu dótinu mínu síðustu daga og komst þá að því hvað ég á mikið drasl... fann gömul jólakort frá '94 og eitthvað svoleiðis dót frá því að ég var krakka sem ég vildi aldrei henda, það er nú allt komið í ruslið núna:!::!:
En samt er alveg fullt eftir, ég fer með það mikið af dóti að við ætlum að fara á öllum þremur bílunum okkar... mamma fer með sófann, rúmið og skrifborðið aftan í lancernum, pabbi flytur hrossin mín (Kleópötru og Þrist) og síðan kem ég á carismunni minni með afganginn af dótinu:!:

Jæja ætla að fara að vinna í því að sofa núna, þarf að byrja daginn snemma á morgun og ennþá fyrr á sunnudaginn þar sem strákarnir okkar eru að fara að spila úrslitaleikinn á ólympíuleikunum :D Váttsss átti aldrei von á að segja þetta ;) en við erum einfaldlega og klárlega best sama hvernig fer:!: ;) enda eru strákarnir okkar flottastir (og líka myndarlegasta landslið heimsins :þ )

Lag dagsins: Mouth Shut með The Veronicas


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 23:56:16 / hilmar04

Never take life seriously. Nobody gets out alive anyway.

Ég er snillingur... já það er eiginlega ekki hægt að halda öðru fram þar sem ég er haldin þeim sérstaka eiginleika að geta slasað mig þar sem enginn annar hefur slasað sig áður :$ án djóks þá ætti ég eiginlega að hringja í þá sem sjá um heimsmetabók Guinnes og láta þá skrá mig eða eitthvað álíka... Í dag var ég nefnilega að enda við að slasa mig á ristinni (sem sagt á löppinni... ég var ekki að slasa mig á brauðrist...) á einstaklega heimskulegan hátt, enda gat ég ekki annað en hlegið þó að ég væri að drepast í löppinni... hehe kemur örugglega út eins og ég sé einhver brjálæðingur, alein út á miðju túni hlægjandi með/að sjálfri mér...8| Svoleiðis er mál með vexti að pabbi bað mig um að sækja dráttavélina út á tún sem rakstrarvélin var aftan í.. ok lítið mál það... ég fer þarna og tek pinnan úr sem heldur vélinni aftan í, síðan tek ég barkann í burtu (sem færir glussann og fleira dót í rakstrarvélina frá vélinni) og ætla síðan að hlaupa upp í vél. En þá tek ég eftir að pabba hefur greinilega ekki fundist nóg að festa hana aftan í með pinnanum og boltanum eins og allir aðrir gera... nei enda er pabbi ekki þekktur fyrir það að gera allt eins og allir aðrir... nei nei hefur hann þá ekki bundið hana aftan í líka til þess að vera nú alveg sure á því að hún færi ekki aftan úr... þannig að ég byrja nottlega að losa spottann, sem ætti nú að reynast auðvelt þar sem þetta var bara einföld lykkja... en nei þá stendur lykkjan eitthvað á sér þannig að ég (sem var að drífa mig þar sem ég nennti ekki að hanga úti á túni allt kvöldið) rykki heldur hressilega í... jújú lykkjan losnaði auðvitað en hún var ekki það eina sem losnaði... nei auðvitað ekki, þá var ég nottlega búin að losa rakstrarvélina aftan úr en hún var samt ennþá upp á beislinu á vélinni þar sem ég er vön að láta hana bara detta niður þegar maður keyrir af stað... en þar sem ég kippti svona allhressilega í datt allt heila klabbið ofan á löppina á mér.. það varð alveg ofboðslega þægileg tilfinning, og hef ég örugglega komið út eins og algjör hálfviti fyrir vegfarendur sem voru að keyra framhjá þar sem ég hoppaði um á einum fæti haldandi um meiddu löppina og missa síðan næstum því jafnvægið því ég hoppaði á þúfu... og síðan var ég nottlega líka skellihlægjandi/öskrandi í þokkabót...:$ Þannig að núna er ristin á mér stokkbólgin, mamma var nú eitthvað hrædd um að hún væri brotin þar sem rakstrarvélin er nú asskoti þung en ég held að hún sé nú í lagi þar sem ég get hreyft allar tærnar ;) já þetta ár er nefnilega búið að samanstanda af alls kyns hrakförum hjá mér, t.d. hef ég verið slegin niður af hesti, flogið af hesti (ég var sko bara að gera tilraun til þess að herma eftir laginu Fly on the wings of love þó að ástin hafi ekkert komið þessari flugverð við) og rann einhverja metra á bakinu áður en ég stoppaði á skurðbakkanum eftir að hafa líka farið í einhvers konar afturábak kollhnís/snúning (tek það líka fram að hrossið var að róthrekkja mig, dett yfirleitt nú ekki af baki annars...), lamin af hesti, nærri rotað mig í fjárhúsunum sem ég skil enn þann dag í dag ekki hvernig ég fór að, kýld af hundinum mínum þannig að það fór að blæða inn á augað á mér, öxlin fór nærri því úr lið í girðingarvinnu, datt mjög illa á hnéið í sauðburðinum þannig að ég gat lengi vel ekki beygt það og það stokkbólgnaði líka og síðan hef ég lent í ýmsu smávægilegu sem ég nenni ekki að telja upp hérna...

En jæja snúum okkur nú að öðru... Fyrir þá sem ekki vissu er ég á leiðinni í Landbúnaðarháskóla Íslands, betur þekktur sem bændaskólinn á Hvanneyri :d, í haust og er ég farin að hlakka nokkuð mikið til :) Er á leiðinni í búvísindi og mun ég byrja á fögunum Maður og náttúra, Líf með landinu I og mitt persónulega uppáhald Stærðfræði :$ það er svo sem ekki slæmt að lítast vel á 2 áfanga af 3... þetta er sko svoleiðis að skólaárinu eru skipt upp í fjórar annir og maður tekur ca. 7-8 einingar á önn sem verða þá 30 einingar yfir árið... ekki verða þriðjudagsmorgnar skemmtilegir hjá mér þar sem ég verð í stærðfræði frá 8-12 :cry: ojjj ég hata stærðfræði :frown: en jæja líta á björtu hliðarnar ;) er komin með húsnæði þarna á Hvanneyri og er þá nýja heimilisfangið mitt Skólaflöt 8, íbúð 108 b :P Það verður nú bara bráðum komið að þessu, skólinn byrjar 25 ágúst og ég verð farin eitthvað fyrr til þess að flytja og svoleiðis mál, líka komin með hesthúsapláss fyrir tvo hesta á Mið-Fossum sem ég var reyndar búin að panta fyrir 4 árum eða eitthvað... ég vann sem sagt þar sumarið 2004 og hví ekki að nýta sér sambönddin þegar maður hefur þau á annað borð ;)

Úff nenni ekki að skrifa meira, ætla aldrei að blogga neitt mikið en það gerist einhvern veginn alltaf... :$ blogga örugglega ekkert á næstunni (ekki það að ég sé vön að blogga eitthvað súper dúper mikið :d ) þar sem ég er að fara í stóðrekstur og síðan beint í hestaferð... sem ég er búin að hlakka til að fara með Hilmar í  í allt helvítis sumar (förum Löngufjörur og það er sko bara gaman að ríða góðum hesti í sandi þar sem hann er svo skemmtileg blanda af hörðu og mjúku) en nei þá springur hófurinn á klárnum upp þannig að hann þarf að fá frí í amsk hálft ár... :cry: er búin að vera að bera hófolíu og vökva hófana á klárnum í allt sumar til þess að þeir springi ekki og hvað gerist??? auðvitað springa þeir... just my luck :evil:

Lag dagsins: 23 með Jimmy Eat World


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 02:25:21 / hilmar04

Everyone is entitled to be stupid, but some abuse the privilege.

Ákvað að byrja þessa bloggfærslu á snilldarsetningu sem ég fann á netinu eftir einhvern ónefndan snilling sem mér finnst eiga vel við núna...


Já það er frekar sjaldgæft að ég skammist mín fyrir að vera Íslendingur þar sem ég er yfirleitt verulega stolt af þjóðerni mínu, en nú er ekki alveg laust við það að ég skammist mín hálfpartinn fyrir að vera Íslendingur 8| ok geng kannski ekki alveg það langt að ég segi að ég skammist mín en ég fæ amsk svona vott af kjánahrolli :$
Og þá er ég að tala um þetta ísbjarnadrama síðustu daga hérna í firðinum... meira bullið og vitleysan, ég var alveg sammála ákvörðuninni um að fella fyrri ísbjörninn og ég held að flestar heilvita manneskjur eru sammála mér í þeirri skoðun... ekki nema svona borgarbörn sem hafa aldrei farið út fyrir malbikið... Ég tel mig nú vera mikinn dýravin eins og allir vita sem þekkja mig vel, ég elska fátt jafn mikið og hestana og hundana mína en samt sem áður fannst mér þetta gjörsamlega réttmætanleg ákvörðun, hvítabirnir eru fallegir og allt það en stórhættulegar skepnur þannig að persónulega finnst mér rétt ákvörðun að fella þá áður en þeir geta skapað meiri hættu en þessi gerði á Þverárfjallinu. Síðan koma svona "náttúruverndarsinnar" og segja að þetta hafi verið morð, ísbjörninn hafi bara verið hræddur, einmana (nota bene ísbirnir geta ekki verið einmana þar sem þeir eru miklir einfarar...) og svangur... hmm látum okkur nú sjá hræddur+svangur=stórhættulegur já en einfalda og barnalega fólkið í samfélaginu hefur greinilega verið heilaþvegið af vænisýki, heimsku og raunveruleikafirru Bandaríkjamanna og haldið að ísbirnir væru eins og þeir sem eru í coke auglýsingunum eða Disney myndunum... veistu einhvern veginn myndi ég ekki vilja mæta ljóni á förnum vegi þó að Simbi og co í Lion King virðist rosalega góð sko... :lol: Já uppáhaldsmottóið mitt fólk er fífl á vel við núna ;) Heyrði td eina konu í útvarpinu segja að hún skyldi nú ekki af hverju hann var drepinn hann var nú ekki að gera neitt, var ekki hægt að skipa fólkinu að vera innandyra og síðan kom hún alveg með rúsínuna í pylsuendanum sem kórónaði alveg heimsku þessarar konu... hún sagði að þar sem þetta væri nú Skagafjörður hlyti að vera fullt af hestagirðingum sem hægt væri að lokka björninn inn í og geyma hann þar:!::!: já þá var mér nú allri lokið... ísbjörninn hefði nottlega verið bara „vóó marrr þarna er girðing sem þýðir nottlega að ég eigi að vera kyrr þar sem ég er...“ já þarna hélt ég að fólk gæti ekki orðið heimskara.... eeennn eins og oft áður náði fólkið að sanna að það er heimskara og barnalegra en ég átti von á.... hestagirðing að halda ísbirni right... síðan var nú fólk að segja afhverju það hefði ekki verið hent nokkrum lömbum eða folöldum til hans að éta, og það er sem sagt í lagi að senda þau útí dauðann en ekki að drepa þennan eina ísbjörn??

Jæja síðan gerðist það sem svo sem fáir áttu von á, ísbjörn nr 2 fannst í firðinum... þá fór þessi svakalegi björgungarleiðangur af stað sem minnti helst á lélegt spennuatriði úr 24 vantaði bara Jack Bauer með töskuna sina og sína mögnuðu hettupeysu... þyrlur og skip mætt á staðinn til að flytja björninn aftur til síns heima, þó að það var ekki einu sinni víst að Grænlendingar tækju við honum... en þeir létu það nú ekki stoppa sig... svo fór sem fór og þurfti að fella björninn þegar hann tók á rás að sjónum... þá kemur heimskan í fólki aftur fram og fólk fer að rausa um hvað það hafi nú ekkert verið hættulegt að leyfa „bangsagreyinu“ að fara aftur út í sjóinn, hann hefði nefnilega örugglega ekki komið í land aftur... hmmm látum okkur nú sjá... ef hann hefði farið aftur út í sjóinn þá hefði hann mjög líklega komið aftur á land nær króknum þar sem hann var of veikburða til að synda aftur til Grænlands eins og sumt fólk hélt fram að hann væri að fara (þar sem sumir orðuðu það svoleiðis að hann væri bara að fara „heim“)... og væri þá mun styggari og hættulegri fyrir vikið... eftir allan þennan pening sem eytt var í þetta mission impossible gekk þetta ekki eftir eins og ég átti von á... síðan er fólk að kalla lögguna morðingja fyrir þetta þó að það hafi komið fram að björninn hefði líklega ekki lifað flutninginn af, er þá ekki betra og mannúðlegra að ljúka þjáningunum strax í staðinn fyrir að þurfa að þjást??? Fólk hefur verið að kalla okkur Skagfirðinga byssu- og morðóða sveitalubba... jahá verra þætti mér nú að vera kallað borgarbarn eins og flestir eru sem mótmæla þessu svona harðlega (er nefnilega nokkuð viss um að flestir, takið eftir ég segi flestir en ekki allir, sem eru að mótmæla þessu sem mest eru líklega úr Reykjavík, kaffihúsakarlar sem hafa ekkert annað að gera en að blogga og einhverjar histerískar húsmæður út í bæ.. ok þarna koma fram fordómar en mér er satt að segja alveg nákvæmlega sama...síðan veit ég nú ekki alveg hvað þetta fólk væri nú ánægt ef eitt stykki ísbjörn birtist rétt hjá Reykjavík, þá held ég nú að það væri annað hljóð í þeim ;) samt smá pæling hvernig hefur fólk tíma til að blogga á hverjum degi um miðjan dag, er það ekki að vinna og ef það er að því hvers konar vinna er þetta sem leyfir þeim að blogga allan liðlangan daginn???) ef einhver mundi nokkurn tímann voga sér að kalla mig borgarbarn myndi ég líklega kýla viðkomandi niður ;) hmm sem sýnir kannski bara fram á það að ég sé bara sveitalubbi sem læt ofbeldið ráða ríkjum.. hmm það er hugleiðing :$

En jæja nenni ekkert að blogga um þetta kjaftæði lengur... ussu sussu er búin að rausa alltof lengi um þetta.... en úúu gleðifréttir ég fékk bréfið frá Landbúnaðarháskólanum í fyrradag og ég er kominn inn :D átti svo sem ekkert von á öðru enda með 8,40 í meðaleinkunn þessi fjögur ár í FNV en alltaf gott að fá jáið :D þannig að þann 25 ágúst verð ég bara flutt á Hvanneyri og byrjuð í háskóla ;) úff ég er svo stór :D meira að sega búin að tala við Rósu um að fá stóðhestastíu undir hann Sólon minn sem ég ætla að taka með mér... ætla að byrja að temja litla sæta graddann minn í haust :D

En jæja ætla að kalla þetta gott núna... þetta varð alltof langt blogg, ætlaði nú bara svona að rita nokkrar línur því ég var svo pirruð yfir heimskunni í fólki og var að tjá mig um það en þetta varð víst aðeins lengra en nokkrar línur... nennir örugglega enginn að lesa þetta en það er ekki málið :P

Kveðja,

Hinn byssuglaði og morðóði sveitalubbi

Eygló

Lag dagsins: Ísbjarnablús með Bubba Morthens />


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 02:05:38 / hilmar04

Always look on the bright side of life, ta dum, ta dum

Jæja hvað segir fólk í fréttum í dag?? eða réttara sagt nótt... Ohh mig langar svo í rúmið mitt akkúrat núna á þessu augnabliki :( langar sko til þess að fara að sofa... en get það ekki þar sem ég stend næturvaktina í sauðburðinum... hef ekkert sofið síðan um kl. 4 síðustu nótt og þá hafði ég bara sofið tæpa 2 tíma (fyrir fram afsakanir fyrir stafsetningar og ásláttarvillur... rollurnar ákveða nefnilega alltaf að bera á nóttunni og taka sér pásu yfir daginn... frábært...:$ og þar sem ég er alltaf á næturvaktinni lendi ég alltaf í þessu :| en jæja núna út í aðra sálma... í dag er þriðjudagur, sem þýðir að á eftir koma miðviku- fimmtu og föstudagur og síðan loks laugardagurinn, útskriftardagurinn... já þið lásuð rétt... litla babyið í fjölskyldunni er að fara að sleppa úr FNV:!: LOKSINS er sko farin að hata þennan skóla....þá er bara Hvanneyri næst á dagskrá sem verður bara æði gæði... trúi ekki að það sé loksins að koma að þessu eftir allan þennan tíma:!: tíhíhí ég er að fara í háskóla :P díses kræst sko og mér sem finnst ég svo "lítil" ennþá... en nei ég er komin á þrítugsaldurinn.... ussu sussu er orðin svo gömul ;)
Umsóknin er tilbúin og allt niðri í umslagi, á bara eftir að fá staðfest afrit af einkunnunum mínum sem ég fæ á laugardaginn, og þá get ég bara sent þetta af stað á mánudagsmorgninum :)

En jæja ætla að fara að koma mér... rollan er borin þannig að ég þarf að fara að standa mig á þessari vakt í stað þess að tölvunordast...

Lög dagsins. No good - KateVoegle
                     Hands down - Dashboard Confessional
                     Rest in pieces - Saliva

         

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 21:21:29 / hilmar04

This could be the beginning of a beautiful friendship

Jæja hef ákveðið að byrja bara að vitna í frægar línur úr bíómyndum þar sem ég á alltaf svo erfitt með að finna fyrirsagnir á þessi fáu blogg mín  ;)  Og þessi lína er  úr myndinni Casablanca fyrir þá sem vissuð það ekki :P

En jæja veit samt ekki af hverju ég er að hafa fyrir því að blogga eitthvað þar sem það eru alltaf svona fáir sem kommenta... eiginlega bara Katrín... takk fyrir það Katrín mín ;):P eini dyggi lesandinn minn greinilega.. sem ég skil svo sem mjög vel, ég er ekkert skemmtilegur bloggari... :s
Ekkert svo sem mikið að frétta hjá mér, er bara í skólanum, og vinna og fara á hestbak... síðan er nú dimiteringin á *ritskoðað* þannig að það verður nú fjör ;) dagsetningin á dimiteringunni er sko algjört top secret þar sem kennarar mega ekki vita hana... :P þannig að það er eins gott að skrifa ekkert um það hérna þar sem það er aldrei að vita hvað kennararnir ramba á á netinu... ohhh síðan langar mig svo í bílinn minn aftur :( fór í viðgerð á mánudaginn og ég fékk bílaleigubíl í staðinn... átti nú von á smábíl þannig að ég var búin að búa mig undir þann möguleika að þurfa að svíkja loforðið mitt um að keyra aldrei smábíl... en ég var ekki búin að búa mig undir þetta... átti von á yaris eða eitthvað... en neeeeiiiiii ég fékk suzuki swift.....í alvörunni suzuki swift:!: hélt nú bara að ég yrði ekki eldri.... suzuki er sko DRASL:!::!: þessi er bara skitin 74 hestöfl.. og eyðir síðan brjálæðislega:!: í alvörunni til hvers að búa til bíl sem er 74 hestöfl og eyðir síðan miklu???? hann eyðir helmingi meira en minn og minn er 500 kg þyngri og 98 hestöfl.... algjört kjaftæði sko... vil fá carismuna mína aftur :frown:

En jæja ætla bara að kalla þetta gott núna....

Lag dagsins: Apologies með Grace Potter and the Nocturnals

Mæli alveg eindregið með þessu lagi, heyrði það sko fyrst í 12 þættinum af fimmtu seríu í One Tree Hill (þar sem ég er svo ólögleg að ég downloada alltaf öllum sjónvarpsþáttum áður en þeir koma í sjónvarpinu ;)...) og fékk sko geðveikislegt æði fyrir því



» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 20:21:55 / hilmar04

Yippie Kai Yay mother fucker....

Jæja svo hvað segir fólk í dag?? Ákvað að taka titilsetninguna frá einum coolaðasta töffara kvikmyndasögunnar.... en það er sko hann John McClane úr Die Hard myndunum leikinn af Bruce nokkrum Willis... já það eru ekki til margir eins miklir töffarar og þessi náungi... uss neiiiii ekkert kúlaðra en að skjóta vondu kallana í kássu og keyra löggubíl á þyrlu og láta hana brotlenda svoleiðis.... og koma síðan með þessa snilldarsetningu á eftir.... er eitthvað kúlaðra en þetta??? jahhh maður spyr sig...8)

En jæja þá út í aðra sálma... er núna í fyrsta skipti að blogga á nýju fallegu fartölvuna mína... tær snilld það... Lagði henni Tótu minni (sem er gamla tölvan mín... hef mikla áráttu fyrir að skýra alla hluti sem ég á... hef ekki grænan af hverju... er samt ekki búin að skýra þessa ennþá ;)) og ákvað að skella mér á nýja hewlett packard tölvu og er ég bara nokkuð ánægð með gripinn :D allt annað að vera í þessari en gömlu druslunni... og já ég festi mér nú kaup í fleiru yfir páskahátíðina... eins og td glænýjum sófa:!: já ég var nebblega á akureyri um daginn með mömmu og pabba þegar ég sé geðveikt flottan sófa sem var mjög hagstæður buddulega séð ;) og ákvað ég því bara að kaupa hann :D ég er nú líka að fara að flytja á Hvanneyri næsta haust þannig að ég þarf að fara að hugsa fyrir þessu.... úfff tíminn líður svo hratt, finnst eins og ég hafi bara verið að leika mér í drullumalli í gær... en nei það eru víst komin nokkuð mörg ár síðan ég gerði það síðast....:s þar sem ég er þar að auki kominn á þrítugsaldurinn 8| en já í gær fékk ég líka óvæntan glaðning, Sverrir og Maggi komu í heimsókn þegar ég og pabbi vorum að gefa og sögðu við mig að nú skildi ég fara út og skoða nýju hryssuna mína:!: ég hafði nottlega ekki grænan grun um hvað þeir voru að tala um.... en þá voru þeir mættir með hryssu fyrir utan sem Maggi hafði  ákveðið að gefa mér :D var nokkuð ánægð með það... Maggi hefur ekki tíma til að eiga hana og hann hefur líka ekkert vit á hrossum þannig að hann ákvað bara að gefa mér hana :D verð nú bara að segja að mér líst asskoti vel á gripinn ;) virðist mjög ljúf og góð og er bara nokkuð vel byggð, með háar og miklar herðar og flott bak :D er á fimmta vetri, rauð með stjörnu og þó nokkuð faxprúð, varð nú að byrja á því að setja gljáasprey í hana til að reyna að ná flókanum úr faxinu á henni, endaði nú samt á því að klippa mestu flækjurnar út, en samt á mjög tískulegan máta sko :P er ekki eins og pabbi að klippa bara beint... og já hún heitir Rauðhetta sem er bara nokkuð við hæfi þar sem hún er nú rauð og svona, tek það fram að það var búið að skýra hana þegar hún kom sko ;) var síðan að lónsera hana í dag og leist þá bara mun betur á hana ;) fer undir sér á brokki en  samt er nú laust um töltið :D var sko geggjað dugleg í leiðinlega veðrinu í dag og lónseraði 10 hross, 7 af þeim höfðu aldrei verið lónseruð áður og gekk þetta alveg framar vonum, þessi hross komu mér sko virkilega á óvart, þau létu bara eins og þau höfðu aldrei gert neitt annað... :D

En jæja ætla að fara að horfa á mannaveiðar í tvinu ;)

Lag dagsins: Lay me down með The Wreckers


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 20:53:14 / hilmar04

Enginn er verri þótt hákallinn ét'ann!!

Já ákvað að stela setningunni hennar Heiðu minnar hér í fyrirsögn:!: enda flott setning þar á ferð... En jæja ákvað barasta að blogga aftur... já núna trúið þið ekki ykkar eigin augum, tvö blogg á stuttum tíma:!: já ég kem sífellt á óvart :P En verð nú samt að segja að ég er ekki ánægð með kommentafjöldann á síðasta blogg þar sem 30 heimsóknir voru einn daginn og bara einn kommentaði og það var litla sólin og hún kommentar nú ekki svo oft yfir höfuð þannig að það er svoldið mikið sagt:!:

En jæja víkjum þá að öðru... sem er reyndar ekkert skemmtilegra... en það er sem sagt gærdagurinn sem var vægast sagt alls ekki og þá ómögulega minn dagur... Hann byrjaði í fyrsta lagi á því að ég þurfti að vakna í skólann sem ég var engan veginn að nenna :s ættum að lengja helgina og leggja niður mánudaga... hata mánudaga versti dagur vikunnar sem sannaðist líka í gær :evil: síðan drullaði ég mér loks í skólann með fýlusvip þar sem ég vildi ekki fá stærðfræðiprófið mitt til baka... þar sem mér gekk ekki vel í því... en uppgötvaði mér til ánægju að ég náði því, sem gerði daginn mjög góðan.. en það var bara í mjög stuttan tíma:!: Ok síðan ákveð ég nú að vera dugleg eftir hádegi og skella mér í íþróttir með Fríðu, ætluðum sko að vera geðveikt duglegar og fara í gönguferð (aka fara á rúntinn, skaffó, pósthúsið og bakaríið.... :$) töluðum við Árna Stef í íþróttahúsinu og fengum leyfi til að vera úti sem var allt í himnalagi þar sem við ætluðum hvort sem er að beila á þessu... það var sko leiðinleg veður:!: Ok og allt í lagi með það, á þessum tíu mínútum sem ég var inni í íþróttahúsinu þá hafði ég lagt bílnum mínum upp á vistarplaninu... síðan þegar við vorum að ganga upp á planið sáum við lögguna... ok ekkert skrítið við það þar sem löggan keyrir reglulega þar um til þess að tékka á óskoðuðum bílum... var svo sem ekkert að pæla í því... síðan tók ég eftir því að löggan hafði lagt beint fyrir aftan bílinn minn... og þá var ég svona whaaattt hvað er í gangi og þá tók ég líka eftir því að bíllinn minn var geðveikt skakkur í stæðinu sem hann hafði ekki verið áður, sá þetta nú svo sem ekkert vel þar sem löggubíllinn var fyrir. Ok er nú ekkert farin að lítast á blikuna á þessum tíma þannig að ég hraða mér í átt að bílnum mínum og kemur þá lögga hlaupandi á móti mér (by the way sem ég hef aldrei séð áður sem er nú frekar skrítið hérna á króknum þar sem allir þekkja alla...) ok og löggan spurði: Ert þú Eygló?
Ég: Uhhh já (þar sem ég vissi ekkert hvað gengi á)
Löggan: Já heyrðu komdu aðeins inn í bíl.
Ég: Uhhh okei.....
(síðan kom Fríða svona inn á milli: má ég koma líka? ekki það að þetta skipti einhverju máli en rétt skal vera rétt :P)
Og þegar ég kem nær sé ég að það er búið að klessa á bílinn minn 8| og stuðarinn að aftan er þónokkuð brotinn (sem sagt brettið), afturljósið brotið (á mjög glataðan hátt by the way) og dæld kominn á bílinn fyrir neðan ljósið :frown: Já þá varð ég nú frekar pirruð að einhver hefði bara klesst á sæta kaggann minn þar sem honum var ekkert lagt á klessvænlegan stað:!: en jæja þannig að ég fer upp í löggubílinn (hehe fannst þetta samt svoldið fyndið að fara svona í aftursætið alveg eins og ég væri einhver bófi... en jæja það er ekki partur af sögunni) og situr þá Smári litli (okei ekki lítill lengur, amsk ekki hæðarlega séð...en það er eins og áður ekki pointið í sögunni) og hafði hann þá bakkað á bílinn minn :s við fórum nú eitthvað að fylla út tjónaskýrslu og svona, og komst ég þá að því að hann var bara búinn að vera með prófið í mánuð greyið... geðveikt góð byrjun... Hans bíll var nú miklu verr farinn en minn, miklu meira brotinn eða svo var mér sagt þar sem ég hafði hugann við að tékka á mínum bíl, sem ég fékk samt ekki að gera áður en ég fór upp í löggubílinn sem ég var ekki hrifin af þar sem skemmdin virtist miklu verri við fyrstu sýn en hún raunverulega er... þannig að það eina sem ég gerði í löggubílnum var að stara út um rúðuna og reyna að meta skemmdina úr fjarlægð (ok og skrifa nafnið mitt á einn stað, nafnið hennar mömmu á annan þar sem hún er skráð fyrir kagganum... segja kennitöluna mína og skrifa bílnúmerið og bíltegundina... ekki mikið mál það) Ég og Fríða áttum samt erfitt með okkur þegar Smári greyið hringdi í mömmu sína til að spyrja hjá hvaða tryggingafélagi þau væru tryggð því þá heyrðist geðveikt hátt eiginlega öskur í gegnum símann: Hvað klesstirðu á??? og þá áttum við svoldið erfitt (amsk ég) við að fara ekki að hlægja að greyinu, ég hló inn í mér ;) Loksins komst ég út til að tékka betur á bílnum mínum sem er svo sem ekkert mikið skemmdur, en samt :S Ok eftir þetta fórum við út í pósthús því Fríða þurfti að póstleggja bréf og ég þurfti að sækja pakka sem ég átti í pósthúsinu.... en gekk það??? neiiii auðvitað ekki þar sem dagurinn var búinn að vera svo góður:!::!::!: þá var pakkinn minn einhvers staðar lengst útí sveit þar sem hálfvitarnir þarna á pósthúsinu virðast ekki fatta að við viljum EKKI fá pakkana senda heim þar sem við erum aldrei heima á daginn... hafa þau náð þessu í þau 120 skipti sem við höfum beðið þau um að senda bara póstkröfuna heim en ekki pakkann???? NEEEIIII auðvitað ekki því það er alltof flókið :evil: ég þurfti svo sem ekkert pakkann þennan dag en ég var mega pirruð fyrir þannig að ég var við það að springa, það var sko reykur farinn að koma úr eyrunum á mér:!: ég var í nokkuð pirruðu skapi fyrir þannig að það þurfti lítið til þess að ég færi yfir um... en ég náði samt að stjórna reiðinni og pirringnum og við Fríða fórum þá í Skaffó og hittum þá fyrrnefndu löggurnar sem brostu geðveikt til mín... þar sem dagurinn minn var einmitt búinn að vera svo broslegur :evil: en jæja við fórum síðan að reyna að rata í hinni nýju Skaffó þar sem þeir eru búnir að breyta búðinni svo mikið að maður stendur bara í henni og hringsnýst og fær víðáttubrjálæði þar sem þeir eru búnir að brjóta niður veggi og svona þannig að búðin er búin að stækka um heilan helling:!: og ekkert dót er þar að auki á sama stað, nema mjólkin enda veit ég ekki hvað maður gerði ef það væri fært... hefur verið þarna frá byrjun... en jæja síðan leituðum við um allt að stílabókum, sem við fundum loksins en fundum þá ekki réttu gerðina... allar aðrar gerðir voru til nema lítil stílabók með gormum, bara til stórar eða litlar án gorma... hmmmm hvað varð um ef það fæst ekki í Skaffó þá þarftu ekki á því að halda... haaaa maður spyr sig..... en jæja fór síðan bara heim og sagði pabba þetta verulega reið, fórum síðan út í VÍS því pabbi ákvað að nota ferðina og fá hurðina á vélinni borgaða sem brotnaði um daginn, en þá kom það í ljós að ég þurfti líka að fara í Sjóvá þar sem Smári var tryggður þar.... þannig að við fórum þangað og gerðum lítið annað þar en að fá að ráða á hvaða verkstæði við vildum að þetta yrði gert... rosalega gagnlegt það :$ fórum síðan út á áka þar sem bíllinn var tjónaskoðaður, og sem betur fer er tjónið bara að utan, skottið skekktist ekkert eða neitt... en það þarf samt að panta nýjan stuðara og eitthvað.... þannig að mér var sagt að þetta mundi líklega ekki taka langan tíma, þetta yrði vonandi búið fyrir páska (sem sagt varahlutirnir komnir og það mál...) huuhhhh "vonandi fyrir" er hugtak sem menn á verkstæðum hér á bæ ættu nú ekki að nota mikið þar sem það gerist aldrei neitt fyrr en viku eða vikum seinna en áætlaður tími var upphaflega.... en jæja það er samt búið að panta allt nýtt á kaggann þannig að málið er komið á hreyfingu:!: Síðan á ég líka rétt á bílaleigubíl á meðan bíllinn er í viðgerð ;) vona að ég fá tusconinn :P já líta á björtu hliðarnar á málinu ;)

En jæja ætla að fara að kalla þetta gott, nenni ekki meiru....
Kveðja
Eygló á klesstu (en samt fallegu) Carismunni sinni

Lag dagsins:
Middle of Nowhere með Hot Hot Heat


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 20:22:59 / hilmar04

Kraftaverkin gerast... og Eygló er farin að blogga

Ha þarna hélduð þið sko að ég væri hætt með síðuna.... gabbaði ykkur feitt þarna... úfff ég er svo sniðug... þetta er bara erfitt:!::!: En samt ég er sko geðveikt mikill bloggari, ég alveg bloggaði 7 sinnum á árinu 2007 haaa toppiði það:!: samkvæmt mínum útreikningum er það alveg 0,5833333333333333333333 færslur á mánuði og þar sem ég er svo klever í stærðfræði þá eru þetta alveg réttir útreikningar:!: :lol: Já er nebblega að fara í stærðfræðipróf á morgun í stæ503 og er alveg búin að læra eins og brjáluð manneskja í dag... úfff ég er farin að sjá tölur alls staðar... mig mun örugglega dreyma um þær í nótt líka... En síðan eftir þessi tvö próf sem ég mun nú fara í koma opnu dagarnir sem eru eiginlega algjörlega gjörsamlega glataðir í ár þar sem það er EKKERT að gerast... ekki einu sinni boðið upp á að fara á hestbak... ég hefði nú gert það og notað tímann og barasta verið að temja eins og vanalega.... En ég, Þórdís og Sigrún erum nú samt búnar að ákveða að fara á eitthvað ljósmyndanámskeið og e-ð sem verður vonandi bara skemmtilegt... Síðan á föstudagskvöldið verður árshátíðin og ætla ég mér að skellast á hana þar sem þetta er nú síðasta árið mitt í þessum helv.... skóla:!: :D Hlakka svo til að losna úr honum :) og síðan bara beinustu leið á Hvanneyri :D Jeyyjjjjj hvað það verður nú gaman :)

En jæja hvernig lýst fólki á nýja lookið á síðunni minni, ákvað að vera ekki svona þunglynd lengur... neii það er nú ekki hægt til lengdar þannig að ég valdi svona bláan fallegan lit og setti síðan mynd af elskunni minni honum james lafferty sem svona upphafsmynd (eða hvað sem maður á nú svo sem að kalla þetta) þannig að maður hafi eitthvað fallegt að horfa á á meðan maður er á síðunni ;) þannig að ef þið nennið ekki að lesa bloggið mitt getið þið bara komið inn á síðuna og horft á eye candyið mitt :P ég er sko ekkert shallow með þessum hugsunum:!: alltaf gaman að horfa á eitthvað fallegt:!: og það vill bara svo til að hann er fallegastur...

en jæja ég ætla að fara að kalla þetta gott og slá botninn í þetta blogg.... ákvað bara svona að rita nokkrar línur til að fólk héldi ekki að ég væri komin undir græna torfu...hef ekki tíma í meira núna þar sem forbrydelsen er að byrja og það er svona þáttur sem er algjört must að horfa á... verð að komast að því hver er morðinginn sko:!::!::!:

Lag/Lög dagsins/kvöldsins:
Feeling a Moment með Feeder
Unsatisfied með Nine Black Alps


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 16:33:34 / hilmar04

Jæja já...

 

Jæja það er nú þónokkuð síðan ég bloggaði síðast en margt hefur á daga mína drifið síðan þá, þar á meðal hm íslenska hestsins :P, hestaferð Léttfeta o.fl ;)

Jæja hér kemur smá ferðasaga frá Hollandi :)

Dagur 1.

Ég og Lilja vöknuðum eldsnemma á mánudagsmorgninum til að ná fluginu, það væri nú svona aðeins verra að missa af fluginu :P Lilja var nú svo góð að hún náði að blikka Val til að skutla okkur út á flugvöll, þannig að við þurftum ekki að taka rútuna. Jáhá hann er nú góður hann Valur :) Ok svo komum við út á flugvöll og keyptum okkur sitthvað, t.d. keypti ég mér myndavél og svona :P Loksins.... Loks kom að því að fara að fara út í flugvélina og lá leið okkar til borg ástarinnar París. Þegar þangað var komið fórum við upp í rútu sem fór á hótel Mercure, sem er by the way glatað hótel.. Síðan fórum við í skoðunarferð um borgina í rútunni og er það held ég leiðinlegasta skoðunarferð sem ég hef farið í (nema kannski þegar maður telur bátaferðina í Amsterdam með) við gátum aldrei stoppað neins staðar út af einhverjum skringilegum ástæðum, þetta var eiginlega bara svona ; já þarna er Notre Dame en við getum samt ekki stoppað hérna, og hérna er þetta safn en við getum heldur ekki stoppað þarna osfrv. Þannig að við keyrðum um í tvo tíma og gátum ekki stoppað neins staðar.... Þannig að ég og Lilja beiluðum hjá Eiffel turninum ásamt eiginlega öllum skagfirðingahópnum, en það hefði ekki getað verið betra fólk í þessari ferð, við vorum sem sagt tólf í skagfirðingahópnum og það voru ég, Lilja, Úlli, Ingimar, Pétur, Helga, Gígja, Auður, Binni, Geiri, Sigga og Anna Margrét :) Já sem sagt við 12 ákváðum bara og forða okkur úr þessari skemmtiferð :$ og ákváðum við þá að fara upp Eiffel turninn... sem var meira mál en að segja það þar sem þessir frakkar geta ekki talað ensku og eru síðan bara ótrúlega dónalegir :evil: Ok ég vissi fyrirfram að þeir væru ekki beint kurteisir en þetta fannst okkur alveg ótrúlegt:!: Við þurftum sem sagt að ganga upp alla stigana eiginlega alla leið upp á topp sem var þónokkurt púl en þetta gekk allt á endanum, enda vorum við staðráðin í að ná upp á topp víst við vorum á annað borð byrjuð á þessu. Nema Ingimar, Úlli og Lilja sem urðu eftir á fyrstu hæðinni og vorum bara þar að sötra bjór allan tímann... Loksins komumst við upp á topp eftir langa mæðu en það var samt alveg þess virði, því að útsýnið var stórkostlegt :) Jæja síðan var komið að ferðinni niður sem var mun leiðinlegri en ferðin upp.... komum loks á fyrstu hæðina þar sem Ingimar og Úlli voru orðnir vel í glasi, enda ekki búnir að gera neitt annað en að sitja og drekka :P Síðan ákváðum við að fara út að borða á Eiffel 38 sem er ekki frásögu færandi nema að hótað var að kalla á lögguna, Ingimar var blindhaugafullur og síðan reyndi þjónninn að rukka okkur um 5000 kall fyrir tvo stóra bjóra... Sem við sættumst ekki á en hann gafst loks upp þegar Pétur harðjaxl blandaði sér í málið... Afgangurinn af kvöldinu fór svo í það að koma Ingimar aftur heim á hótelið og síðan var farið að sofa þar sem við þurftum að leggja snemma af stað næsta morgun:!:

Dagur 2.

Næsti morgun einkenndist af leiðinlegum og öskrandi frökkum (þar að auki á frönsku þannig að maður skildi ekki neitt :S), ógeðslegum morgunmat og stressi yfir því að vera of sein í rútuna þar sem við þurftum að kaupa okkur mat fyrir langa rútuferð til Brussel… Loksins eftir langa keyrslu komum við til Brussel sem er nú frekar ófögur borg nema miðbærinn eða miðtorgið réttara sagt… Þar fengum við okkur litla máltíð þar sem við þurftum að drífa okkur aftur í rútuna til að halda áfram förinni til Eindhoven :) Þegar við komum loks á hótelið okkar Novotel fengum við okkur bara kvöldmat og áttum síðan rólegt kvöld saman á hótelinu þar sem við vorum öll þreytt eftir rútuferðina.

Dagur 3

Fórum í bæjarferð til Eindhoven þar sem ég stóð bara í magninnkaupum ásamt hinum stelpunum á meðan kallarnir fóru á næsta bar ;) hmm eitthvað kannast maður við það 8) En ég verð nú eiginlega að tjá mig yfir hraðbankaleysinu í Hollandi (amsk í Eindhoven og Amsterdam) það var einn hraðbanki í öllu Piazza mollinu (sem er mun stærra en Kringlan) og hann var einhvers staðar lengst niðri í kjallara sem maður mundi aldrei þora að fara einn :/ Og í sumum búðum var ekki einu sinni hægt að borga með korti bara peningum, já ég er sko alltaf með seðlabúnt í vasanum þegar ég fer í búðir 8) Ég og Lilja slæptumst síðan bara um í Eindhoven og keyptum ýmislegt sem okkur fannst vanta í fataskápinn... úfff eyddi sko alltof miklu þarna úti :/ Síðan fórum við bara á hótelið og fengun okkur að borða þar (mjög góður veitingastaður sko) síðan horfðum við á sjónvarpið og það er frekar fyndið að heyra þessa amerísku þætti á hollensku, frekar sérstakt sko :P

Dagur 4.

Þá skelltum ég og Lilja okkur til Amsterdam þar sem það tekur bara klukkutíma að fara þangað með lest :) Og ég verð nú bara að segja að Amsterdam er alveg eins og í bíómyndunum, eða það er að segja rauða hverfið er svoleiðis... díses kræst sko þarna voru bara hórurnar út í glugga verulega fáklæddar eins og ekkert væri eðlilegra og ég get sko sagt ykkur að þær voru ekki beint vel vaxnar og flestar vel yfir besta aldri... Síðan voru karlarnir og konurnar líka ef út í það var farið bara að skoða þær eins og fólk skoðar í venjulega búðarglugga hérna heima, þetta var svona pínu menningarsjokk sko, síðan þegar einhver karl var að reyna að bjóða okkur inn í einhverja kynlífsbúð þar sem bæði var hægt að kaupa leikföng og the real thing 8) vorum við nú frekar fljótar að láta okkur hverfa ;) Síðan var fólk líka bara úti á götu að reykja marijúana og hass eins og ekkert væri eðlilegra þar sem það er nú löglegt þarna, og síðan stóð alltaf á auglýsingunum frá kaffihúsunum strong coffee og einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að þetta hafi ekki verið venjulegt sterkt svart kaffi... Svo fórum við til Madame Tussau vaxmyndasafnið og þar hitti ég meðal annars, George Clooney, John Bon Jovi, Robbi Williams og fleiri flotta fýra ;) Síðan fórum við í siglingu um borgina þar sem það átti víst að vera mjög skemmtilegt en ég verð að segja að ég hef sjaldan séð jafn mikið eftir peningunum og þarna :S Það var nefnilega ekkert mikið spennandi að sjá og síðan voru fjögur tungumál töluð og fyrst kom hollenskan, síðan þýska, þar á eftir franska og loks kom enskan þannig að maður vissi ekkert um hvað guidinn var að tala um því maður var löngu kominn fram hjá húsinu sem hann hafði verið að tala um, þetta var svona frekar pirrandi verð ég að segja.. En jæja síðan ákváðum við bara að fara aftur ,,heim” og skelltum okkur á lestarstöðina þar sem við hlupum á eftir lestinni alveg eins og í bíómyndunum... en því miður var ekki nóg að hlaupa eins og brjálæðingar um alla lestarstöðina því bið misstum af lestinni.. vorum svoldið stressaðar þá en komumst síðan að því að önnur lest færi eftir 40 mín eftir langa leit þar sem allar leiðbeiningar voru auðvitað á hollensku, en sem betur fer fundum við mjög góða konu sem hjálpaði okkur með þetta system þannig að við vorum farnar að fatta þetta aðeins ;) Loks komumst við í lestina en fengum síðan áfall þegar við föttuðum að þetta væri ekki alveg sama leið og við fórum í fyrra skiptið, þannig að við héldum að þetta væri vitlaus lest... sem þetta var reyndar ekki þegar upp var staðið ;)

Dagur 5.

Þá skelltum við okkur loksins á heimsmeistaramótið sjálft, loksins loksins :D Þurftum að vakna snemma til að fara með rútunni á mótsvæðið kl. 8 en það var sko alveg þess virði ;) Það fyrsta sem við gerðum þegar við komum inn á svæðið var að festa kaup á íslenska fánanum, stígvélum og regnslám þar sem mótssvæðið var eitt svað... Fórum svo í sætin okkar sem voru í annarri röð frá vellinum þannig að maður þurfti ekki einu sinni að súmma á myndavélinni til að taka myndirnar :D algjört æði sko ;) Enda talaði ég um lítið annað en hvað þetta væru góð sæti fyrsta klukkutímann :) Síðan fórum við að spjalla við fólkið í kringum okkur og ég komst að því að ég og Siggi (sem sagt ekki bróðir minn heldur maðurinn sem sat fyrir aftan okkur) vorum bara alveg á sömu blaðsíðu með þetta mót, vorum sko búin að ákveða að Tóti og Krafturinn tækju fimmganginn, Stian og Jarl fjórganginn, Eyjó og Hárekur tækju T2 og Jói og Hvinurinn tækju töltið... reyndar fór þetta ekki svona en þetta voru draumaúrslitin okkar ;) Við vorum nú bara á mótsvæðinu allan daginn langt fram á kvöld, ekki slæmur árangur að vera á svæðinu frá 8 um morguninn til 2 um nóttina :P En maður verður nú bara að hrósa Hollendingunum fyrir allan aðbúnað á mótinu, klósettaðstöðu, veitingarnar og allt svona sem er yfirleitt til einhverra vandræða... en þetta var bara frábært, algjör snilld sko :)

Dagur 6.

Vöknuðum auðvitað aftur snemma til að sjá b úrslitin þar sem við vorum nú spennt hvort fleiri Íslendingar kæmust upp í a úrslitin ;) Horfðum síðan á skeiðið þar sem Beggi og Lótus voru alveg að slá í gegn :P á meðan hinir Íslendingarnir voru ekki alveg að gera sig... Fórum síðan bara í verslunartjöldin og ég keypti mér jakkann sem ég féll fyrir á landsmótinu síðasta sumar ;) Gat ekki látið hann fara framhjá mér tvisvar þó að hann hafi verið dýr :P Eru sko bara örlög mín að eiga þennan jakka og síðan er hann sko geggjað góður og þægilegur :D Vorum bara síðan á svæðinu að skemmta okkur með hinum og fórum síðan á gala kvöldið, sem var bara nokkuð gott átti samt von á meiru.. Gala kvöldið er sem sagt bara skemmtidagskrá þar sem þeir reyna að sýna ýmis atriði úr hollenskri hestamennsku :) Fyrst komu sætir pónýhestar inn á völlinn, fyrst kom sko stóð af þeim og eitt folaldið var liggur við næstum því eins lítið og Vaskur og Lappi eru núna :P síðan komu hestarnir með knapana inn á völlinn þar sem þeir kepptu í kappreiðum og hindrunarstökki, og ég verð nú eiginlega bara að segja að þetta er eitt það fyndnasta og dúllulegasta sem ég hef séð, þeir eru með svo ótrúlega litlar og stuttar lappir en samt er ótrúlegt hvað þeir komust þó hratt yfir ;) Þó að Hilmar gæti nú rústað þeim á milliferð á brokki en það er ekki málið :P Síðan kom heilmikið af hestum með vagna inn á völlinn, þetta atriði var eiginlega allt of langt því það eru takmörk fyrir því hvað maður nennir að horfa á hestvagna lengi... Síðan kom kona á dressúr hesti inn á völlinn og var að sýna okkur ýmsar dressúr æfingar, þetta atriði var líka allt of langt og þetta heillaði mig ekkert svakalega mikið þar sem Hilmar getur flestar æfingarnar líka (hann er svo fjölhæfur elsku dúllan mín :*) Síðan kom einhver kall inn á völlinn sem reið berbakt og beislislaust, þetta höfðaði heldur ekkert til mín þar sem ég hef líka oft riðið berbakt og beislislaust, hann hafði tvö keyri til að stýra hestinum á meðan ég hef stýrt hesti bara með löppunum og ásetunni, þarf engin svona hjálpardekk eins og hann ;) Það eina sem mér fannst flott við þetta prógramm var þegar hann lagði hestinn, þeas þegar honum tókst það loksins 8) Síðan kom annað kerruatriði (Hollendingar eru þekktir fyrir hestvagnana sína) sem var alls ekkert skemmtilegt þar sem það var allt á hollensku þannig að maður skildi bara orð og orð á stangli 8) Þjóðverjar og Hollendingar fögnuðu eins og brjálæðingar á meðan hinar þjóðirnar vissu ekkert hvað væri að gerast, það var ekki beint spennandi... En loksins kom rúsínan í pylsuendanum og það atriði var GEÐVEIKISLEGA FLOTT gerði sko alla biðina þess virði :) og það fyndnasta var að þetta voru Kanar ;) en þeir voru að gera ýmar kúnstir á hestunum, t.d. að stökkva af hestunum á harðastökki og hlaupa með hestinum og stökkva yfir hann, nota bene allt á harðastökki, síðan stóðu þeir á höndum í hnakknum, hengu aftur af hestunum með hausinn á undan, stóðu á hestunum, fóru kollhnísa, sátu afturábak og bara allt sem þér getur dottið í hug og eiginlega meira en það og allt á harðastökki, maður sat bara með öndina í hálsinum og þorði varla að fagna fyrr en þetta var allt búið og þá brjálaðist stúkan sko þetta var líka ótrúlega stórkostlegt :) En maður fer nú samt að pæla í því hvernig og afhverju fólki datt þetta í hug í fyrsta lagi, bara einn góðan veðurdag ,,hey ég ætla að fara kollhnís á hestinum mínum og henda mér síðan af baki, já það er nú góð hugmynd ekki séns að ég geti slasað mig á því 8)” ég hef sko oft séð þetta í sjónvarpi og á video og svoleiðis en það er sko allt annað að sjá þetta með eigin augum:!: ég hélt varla vatni yfir þessu öllu saman ;) Síðan kom bara lokaatriðið þar sem málaður hestur var teymdur inn á völlinn en á hann voru málaðir allir fánar þjóðanna sem voru að keppa og á meðan var sungið alveg ,,uppáhalds” lagið mitt, en það var lag sem búið var til sérstaklega fyrir heimsmeistaramótið, fyrst hataði ég það og fannst það sko verulega leiðinlegt en síðan vandist það og síðustu dagana var maður farinn að söngla með ;) if you ride with me, we are heading for the sun ;) var ekki svo slæmt þegar upp var staðið :P

Dagur 7.

Jæja nú var komið að alvörunni:!: Þetta var það sem allt snerist um:!::!: Alvara lífsins tók við:!::!: Ok kannski smá drama í gangi þarna ;) Lokadagurinn rann upp bjartur og fagur og við vöknuðum eldsnemma þar sem það var nú ekki erfitt þar sem ég festi varla blund um nóttina fyrir tilhlökkun :) Drifum okkur niður í morgunmat þar sem ég borðaði þó ekki mikið fyrir fiðrildunum í maganum:!: Loksins komum við á svæðið þar sem mátti skera loftið með hníf svo mikill spenningur lá í loftinu og Lilja smitaðist að meira að segja af andrúmsloftinu :D Dagurinn byrjaði á a úrslitum í fimmgangi þar sem maður hvatti nú Íslendinga til dáða þar kom fáninn sko til góðra nota :D Vá þjóðrembingurinn sem gerði vart við sig þarna var ótrúlegur :) Tóti og Krafturinn voru sko æðisgengilegir og þeir áttu sko Íslendingastúkuna þó að maður hafi nú líka hvatt Rúnu og Frey og Önnu og Fönix til dáða ;) Þetta voru samt ótrúlega spennandi úrslit þar sem Kraftur skoraði mjög lágt á fetinu þar sem hann var allur uppspenntur en hann tók þetta samt með 8,10 í einkunn :D Þar var þriðji heimsmeistaratitillinn í höfn (Sigursteinn Sumarliðason vann gæðingaskeiðið á Kolbeini frá Þóroddsstöðum og Beggi vann 250 metrana á Lótusi góð frammistaða þar ;)) :D Síðan kom fjórgangurinn þar sem maður hélt nú samt eiginlega með Norsaranum Stian Pedersen og Jarli frá Miðkrika þar sem maður vissi að Olil átti ekki séns á að vinna á Svaka þó að maður hafi nú samt sem áður hvatt þau dyggilega ;) Stian átti bara einfaldlega skilið að vinna eftir allan þennan tíma ;) Síðan kom að 100 m skeiðinu þar sem Beggi vann aftur á Lótusi og var þá orðinn tvöfaldur heimsmethafi í skeiði :) við unnum allt skeiðið í fyrsta sinn í langan tíma þar sem hann Mjölnir frá Dalbæ hefur alltaf rústað okkur en hann endaði annar núna :P átti ekki roð í Lótus með þennan knapa ;) En Begga var mikið fagnað enda ekki á hverjum degi sem maður er tvöfaldur heimsmethafi :P Síðan kom að T2 sem er slaktaumatöltið en þar varð Jolly Schrenk heimsmeistari og Eyjó okkar í 2 á Háreki ;) góður árangur það :) síðan kom að verðlaunaafhendingu efstu kynbótahrossanna, þar áttum við efstu stóðhestana í öllum flokkum ;) hehe við erum best :P Og síðan kom að aðalnúmerinu sem braut hjörtu okkar Íslendinga þennan dag :S en það var töltið... Við áttum tvo efstu menn inn en það voru Jói á Hvin og Tóti á Kraft og guð minn góður þetta var erfitt:!: Allt gekk vel í byrjun Jói var áberandi hæstur eftir hæga töltið og gekk rosa vel í hraðabreytingunum þar til skeifan flaug undan með steypingunni og öllu heila klabbinu:!: Jói hélt nú samt auðvitað áfram keppni en á yfirferðinni þegar umþb 2-3 hringir voru eftir flaug hlífin af líka og þá var leikurinn búinn :cry: og vá ég táraðist það er sko alveg óhætt að segja það:!: spennufallið var svo gríðarlegt því við vorum langhæst og vorum búin að fá 2 tíur og allt:!: Enda féll mórallinn hjá okkur Íslendingum gjörsamlega úr sky high í very very very down low, þetta var hræðilegt, flestir þar á meðal ég grúfðu andlitið í höndum sér, maður gleymdi gjörsamlega að hvetja hina Íslendingana í brautinni þar sem maður starði bara á Jóa og Hvin á fetinu í brautinni, síðan fóru þessi helv.... Þjóðverjadjöflar að fagna, nei þeir voru ekki að fagna sínum mönnum... neeeeiii þeir voru að fagna því að það flaug undan Hvin, þegar kynnirinn tilkynnti að hann ætti bara að ríða fetið á meðan hinir voru á yfirferðinni fögnuðu þeir og stóðu upp, þá brjáluðumst við og stóðum upp og púuðum og öskruðum ófögrum setningum til Þjóðverjanna, Þjóðverjar og Íslendingar eru sko verulega miklir óvinir á hm, enginn veit samt afhverju en allir viðhalda venjunni, alveg eins og allir vissu að Varmahlíð og Þelamörk voru óvinir en enginn vissi samt afhverju, fyrir utan að Þjóðverja/Íslendingahatrið þarna eru í mun meira mæli en Varmó/Þeló hatrið. Fyrst færðist þetta út í mikla sorg, síðan varð ég geðveikt bitur, síðan reif ég hausinn af Lilju þegar hún reyndi eitthvað að malda í móinn, síðan færðist þetta aftur út í sorg, svo út í Þjóðverjahatur og loks Norsarahatur þar sem Stian komst yfir Tóta og vann tölthornið mikla :cry: enda gat ég ekki horft á þegar hann tók við því, horfði sko í allar aðrar áttir en þangað, eins og margir Íslendingar gerðu, síðan stóð maður nú upp og fagnaði Íslendingunum í brautinni þar sem við náðum nú samt sem áður góðum árangri, þar sem við náðum 2,3 og 5 sætinu :) Síðan varð maður nú smá að klappa fyrir Stian því hann átti þrátt fyrir allt góða sýningu og sagði líka í viðtalinu í verðlaunaafhendingunni að hann hefði einfaldlega bara verið heppinn og þetta hefði verið hans lucky card, maður hefði aftur á móti brjálast ef hann hefði verið að segja að hann hafi unnið því hann var bestur og eitthvað svoleiðis bullshit... En greyið Jói hann tárfelldi nú eitthvað enda er það nú ekki nema von, svaka spennufall. Síðan kom bara að lokunarathöfn mótsins þar sem við Íslendingar tókum við 2 heimsmeistaratitlum til viðbótar, Tóti og Kraftur unnu samanlagt í fimmgangi og Jói og Hvinur samanlagt í fjórgangi enda erum við einfaldlega best :P Síðan kom maður sér bara heim og slakaði á á hótelinu og pakkaði því við vorum að fara að fljúga heim á leið næsta dag.

Dagur 8.

Fór nú bara allur í keyrslu til Amsterdam og síðan í flugið heim ;) þó að það hafi nú verið virkilega gaman var gott að koma heim aftur :P Ég og Lilja keyptum okkur bönns af nammi í fríhöfninni áður en við héldum heim í Skagafjörðinn á kagganum mínum :P

Jæja þá er þessu bloggi loksins lokið, held að ég hafi aldrei bloggað svona langt og mikið blogg ;) Skelli inn myndum úr ferðinni við tækifæri :)

Lag dagsins: Everywhere she goes með Across the Sky.

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 17:38:09 / hilmar04

Good morning good day and good evening ;)

Jæja ögn gleðilegri bloggfærsla núna ;) Já það er nebblega góð ástæða fyrir glaðlegheitum mínum :P Ég, mamma og pabbi fórum nefnilega í bíltúr í gær í Borgarfjörðinn í mjög mikilvægum erindagjörðum... Já við vorum nefnilega að fara að sækja nýjustu viðbótina í familíuna þar sem við vorum aðeins þrjú, þar sem hún elskulegasta og besta Perla okkar kvaddi í byrjun maí :cry::cry: Sem betur fer var sauðburðurinn í hámarki þannig að ég hafði mikið að gera... En það er nú allt önnur saga, þannig að núna ætla ég að halda skemmtilegu og glaðlegu sögunni áfram :) För okkar var heitið á bæinn Hofsstaði í Borgarfirði, þar sem glaðningurinn beið okkar :) Og þessi yndislegi glaðningur eru tveir yndislega og æðislegir hvolpar :D (Já við fengum okkur tvo þó að mamma hafi sagt að við ætluðum ALDREI að fá okkur tvo hvolpa aftur:lol:).

Þeir eru alveg yndislegir og litlir hnoðrar, 8 vikna hreinræktaðir yndislegir border collie hvolpar :haha: Þeir eru SVO miklir dúllusnúllar, algjör krútt sko :D Annar þeirra heitir Lappi, hann er gulbrúnn sem er víst mjög sjaldgæft hjá border collie þar sem þeir eru yfirleitt svartir og hinn heitir Vaskur og hann er svartur með svona gulbrúnt armband um vinstri framlöppina :) Það er sko alveg ótrúlegt hvað manni getur þótt vænt um svona lítil kvikindi (en samt ÓTRÚLEGA sæt kvikindi) á svona stuttum tíma :P Þeir eru sko ótrúlega miklar dúllur og krútt og snúllur og ok ég held að þið vitið hvað ég meina ;) þeir eru sko alveg búnir að vefja okkur um loppuna á sér, við gerum sko allt fyrir þá :) og þeir vita sko vel af því :D

Bílferðin í gær var samt þónokkuð erfið þar sem þeir urðu svoldið bílveikir á leiðinni (ég gerði nú samt ekki sömu mistök og ég gerði með Perlu á sínum tíma), þannig að þegar þeir komu heim var fyrsta verkefnið okkar að skella þeim í bað og þvo af þeim æluna og slefið (þeir slefuðu svo mikið á leiðinni heim að við vorum að pæla í að skíra þá Slef og Slubba ;)) Þeim fannst nú bara þónokkuð gaman í baðinu og voru sko alveg að fíla sig þar :) Þeir eru að meira að segja búnir að finna sér uppáhaldsstað hérna heima en það er bak við grillið og þar sofa þeir alltaf þegar þeir eru búnir að leika sér of mikið :) ohhh þeir eru svo miklir dúllusnúllar sko :) Við erum að vonast til að þeir verði miklir fjárhundar eins og mamman en hún er verðlaunafjárhundur og amman var víst margverðlaunuð í ýmsum fjárhundakeppnum þannig að þetta er alveg í ættunum :) En jæja ætla að fara að hætta þessu og gefa voffunum mínum að borða... eða bara að fara að leika við dúllurnar :D

 Lag dagsins: Always Love með Nada Surf


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 11:22:33 / hilmar04

Heimurinn í dag er ógeðslegur!!!

Hef verið að fylgjast með einu máli í fréttunum síðustu daga, en það er fréttin um Chinese Crested hundinn Lúkas. Hann slapp frá eigendum sínum á Akureyri og var leitað um allt að honum en leitin bar ekki árangur. Á bílahelginni 15-17 júní á Akureyri sást síðan til 5 ungra manna með Lúkas þar sem þeir tróðu honum í íþróttatösku og spörkuðu honum á milli sín en leikurinn endaði þannig að Lúkas lét lífið. Tveir menn komu aðvífandi og báðu þá um að hætta þessu en þeim var þá hótað að þeir yrðu næstir. Þeir hringdu þá í neyðarlínuna en svarið sem þeir fengu var að lögreglan hefði ekki tíma í "svona" mál. Ef þeir hafa ekki tíma í svona mál eins og þeir orðuðu það hvað hafa þeir þá tíma í??? Vá hvað íslenska lögreglan er góð, þeir álíta greinilega að þetta sé ekkert mikilvægt. Enda hefur fyrir löngu sannast að mállausu vinir okkar hafa greinilega engin réttindi hérna á þessu litla landi. Ég fylltist svo mikilli reiði við að lesa þetta og horfa á þetta í fréttunum:!: Ég tek þetta mjög nærri mér að einhver geti gert þetta við lítið og bjargarlaust dýr, þeir hafa greinilega ekkert hjarta þessi helvíti. Bloggsíða eins stráksins sem er talinn hafa gert þetta var gefin upp en núna er búið að loka henni þar sem hann fékk margar og svæsnar morðhótanir á síðunni, sem ég verð nú að segja að hann átti alveg fylliega skilið en þetta er samt sem áður ALLS EKKI rétta leiðin til að taka á þessu, því núna er búið að kæra til lögreglunnar fyrir meiðyrði og það er auðvitað hægt að rekja þetta og þá lenda þeir í vandræðum sem skrifuðu þetta. Þá koma þeir sem drápu Lúkas út sem einskonar fórnarlömb í þessu máli þar sem búið að að hóta þeim svona. Síðan er vitnið sem kom fram búið að fá lífshótanir í gegnum sms og vill því auðvitað ekki koma fram undir nafni.

Ég vorkenni eigandanum mest og skil vel að það eina sem þau vilja sé að fá hann aftur þannig að þau geti hvatt hann. Guð ef einhver hefði gert Týru og Perlu þetta á sínum tíma hefði ég gengið frá honum, ég lít amsk á hunda sem fjölskyldumeðlimi þó að sumir fatti ekki afhverju þetta er svona mikið mál þar sem þetta er "bara" hundur...

Ég vona bara að þeir fái einhverja refsingu fyrir þetta en ef maður þekkir réttarkerfið hérna rétt fá þeir bara svona smá skammir frá löggunni eða e-ð. Ég las nú um daginn á netinu að maður fékk 3 ára fangelsisdóm fyrir skjalafals eða e-ð svoleiðis og á sama tíma var verið að dæma mann sem var búinn að misnota stjúpdóttur sína síðan hún var fimm ára og hann fékk 18 mánaða fangelsi. Já þetta er nú sanngjarn dómur þar sem peningar eru greinilega mikilvægari en lítið barn sem er búið að eyðileggja lífið fyrir til frambúðar. Þetta er sko lífið á Íslandi í dag.

Arrg ég er svo reið þannig að ég ætla bara að fara á hestbak á hilmsanum mínum eða eitthvað til að kæla mig niður!


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 13:51:52 / hilmar04

135 - ég á mér greinilega ekki líf!!!

SUPPOSEDLY if you've seen over 85 movies, you have no life. Mark the ones you've seen. There are 239 movies on this list. Copy this list mail, go to your own blog, paste this as a note. Then, put x's next to the movies you've seen, add them up, change the header adding your number, and click post at the bottom. Have fun!

( ) Rocky Horror Picture Show
(x) Grease
(x) Pirates of the Caribbean
(x) Pirates of the Caribbean 2: Dead Man's Chest
( ) Boondock Saints
(x) Fight Club
(x) Starsky and Hutch
(x) Neverending Story
( ) Blazing Saddles
( ) Airplane
( ) Fear and Loathing in Las Vegas

Total: 6

( ) The Princess Bride
( ) AnchorMan
( ) Napoleon Dynamite
( ) labyrinth
(x) Saw
(x ) Saw II
( ) White Noise
( ) White Oleander
(x) Anger Management
(x) 50 First Dates
(x) The Princess Diaries
(x) The Princess Diaries 2: Royal Engagement

Total so far: 12

(x) Scream
(x ) Scream 2
(x ) Scream 3
(x) Scary Movie
(x ) Scary Movie 2
(x ) Scary Movie 3
(x ) Scary Movie 4
(x) American Pie
( ) American Pie 2
(x) American Wedding
( ) American Pie Band Camp
( ) American Pie Naked Mile

Total so far: 21

(x) Harry Potter 1
(x) Harry Potter 2
(x) Harry Potter 3
(x) Harry Potter 4
( ) Resident Evil 1
( ) Resident Evil 2
(x) The Wedding Singer
( ) Little Black Book
(x ) The Village
(x) Lilo & Stitch

Total so far: 28

(x) Finding Nemo
(x)Finding Neverland
(x) Signs
(x) The Grinch
(x ) Texas Chainsaw Massacre
( ) Texas Chainsaw Massacre: The Beginning
(x ) White Chicks
(x) Butterfly Effect
(x) 13 Going on 30
(x) I, Robot
( ) Robots

Total so far: 37

(x) Dodgeball: A True Underdog Story
( ) Universal Soldier
( ) Lemony Snicket: A Series Of Unfortunate Events
(x) Along Came Polly
( ) Deep Impact
( ) KingPin
(x) Never Been Kissed
(x) Meet The Parents
(x) Meet the Fockers
( ) Eight Crazy Nights
(x ) Joe Dirt
( ) KING KONG

Total so far: 43

(x) A Cinderella Story
(x) The Terminal
(x) The Lizzie McGuire Movie
( ) Passport to Paris
(x) Dumb & Dumber
( ) Dumber & Dumberer
(x) Final Destination
(x ) Final Destination 2
( ) Final Destination 3
(x ) Halloween
(x) The Ring
(x ) The Ring 2
( ) Surviving X-MAS
(x ) Flubber

Total so far: 53

( ) Harold & Kumar Go To White Castle
( ) Practical Magic
( ) Chicago
(x) Ghost Ship
(x) From Hell
( ) Hellboy
( ) Secret Window
(x) I Am Sam
(x) The Whole Nine Yards
(x) The Whole Ten Yards

Total so far: 58

(x) The Day After Tomorrow
( ) Child's Play
( ) Seed of Chucky
( ) Bride of Chucky
(x) Ten Things I Hate About You
(x) Just Married
(x) Gothika
( ) Nightmare on Elm Street
( ) Sixteen Candles
(x) Remember the Titans
(x) Coach Carter
( ) The Grudge
( ) The Grudge 2
(x) The Mask
( ) Son Of The Mask

Total so far: 65

(x) Bad Boys
( ) Bad Boys 2
( ) Joy Ride
(x) Lucky Number Slevin
(x) Ocean's Eleven
(x) Ocean's Twelve
( ) Bourne Identity
(x) Bourne Supremecy
( ) Lone Star
(x ) Bedazzled
( ) Predator I
( ) Predator II
( ) The Fog
(x) Ice Age
( ) Ice Age 2: The Meltdown
( ) Curious George

Total so far: 72


(x) Independence Day
( ) Cujo
( ) A Bronx Tale
( ) Darkness Falls
( ) Christine
(x) ET
( ) Children of the Corn
(x )My Bosses Daughter
(x) Maid in Manhattan
( ) War of the Worlds
(x) Rush Hour
( ) Rush Hour 2

Total so far: 77

( ) Best Bet
(x) How to Lose a Guy in 10 Days
(x) She's All That
(x) Calendar Girls
(x) Sideways
(x ) Mars Attacks
( ) Event Horizon
( ) Ever After
(x) Wizard of Oz
(x) Forrest Gump
( ) Big Trouble in Little China
(x) The Terminator
( ) The Terminator 2
( ) The Terminator 3

Total so far: 85

(x) X-Men
(x) X-2
(x) X-3
(x) Spider-Man
(x) Spider-Man 2
( ) Sky High
( ) Jeepers Creepers
(x ) Jeepers Creepers 2
(x) Catch Me If You Can
(x) The Little Mermaid
(x) Freaky Friday
(x ) Reign of Fire
( ) The Skulls
(x) Cruel Intentions
(x) Cruel Intentions 2
(x) The Hot Chick
(x) Shrek
(x) Shrek 2

Total so far: 100

(x ) Swimfan
( ) Miracle on 34th street
(x) Old School
(x) The Notebook
( ) K-Pax
( ) Krippendorf's Tribe
( ) A Walk to Remember
( ) Ice Castles
( ) Boogeyman
( ) The 40-year-old-virgin

Total so far: 103

(x) Lord of the Rings Fellowship of the Ring
(x) Lord of the Rings The Two Towers
(x) Lord of the Rings Return Of the King
(x) Indiana Jones and the Raiders of the Lost Ark
(x) Indiana Jones and the Temple of Doom
(x) Indiana Jones and the Last Crusade

Total so far: 109

( ) BASEketball
(x) Hostel
( ) Waiting for Guffman
(x ) House of 1000 Corpses
( ) Devils Rejects
(x) Elf
(x) Highlander
( ) Mothman Prophecies
( ) American History X
( ) Three

Total so Far: 113

( ) The Jacket
( ) Kung Fu Hustle
( )Shaolin Soccer
( ) Night Watch
(x) Monsters Inc.
(x) Titanic
(x) Monty Python and the Holy Grail
(x) Shaun Of the Dead
( ) Willard

Total so far: 117

( ) High Tension
( ) Club Dread
(x ) Hulk
(x ) Dawn Of the Dead
( ) Hook
(x) Chronicle Of Narnia The Lion the Witch and the Wardrobe
(x) 28 days Later
( ) Orgazmo
( ) Phantasm
( ) Waterworld

Total so far: 121

(x) Kill Bill vol 1
(x) Kill Bill vol 2
( ) Mortal Kombat
( ) Wolf Creek
( ) Kingdom of Heaven
(x ) The Hills Have Eyes
( ) I Spit on Your Grave aka the Day of the Woman
( ) The Last House on the Left
( ) Re-Animator
( ) Army of Darkness

Total so far: 124

(x) star Wars Ep. I The Phantom Menace
(x)Star Wars Ep. II Attack of the Clones
(x) Star Wars Ep. III Revenge of the Sith
(x) Star Wars Ep. IV A New Hope
(x) Star Wars Ep. V The Empire Strikes Back
(x) Star Wars Ep. VI Return of the Jedi
( ) Ewoks Caravan Of Courage
( ) Ewoks The Battle For Endor

Total so far: 130

(x) The Matrix
(x) The Matrix Reloaded
( ) The Matrix Revolution
( ) Animatrix
( ) Evil Dead
( ) Evil Dead 2
( ) Team America: World Police
(x) Silence of the Lambs
(x) Hannibal
(x) Red Dragon

Total: 135

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 21150
Klukkan